Magnús Franklín

Magnús Franklín

Upplýsingatækni innviða sérfræðingur: Nutanix, Cohesity, Fortinet, Microsoft 365 og Azure

Hafnarfjörður

Magnús Franklín með ísjaka við Jökulsárlón

Í stuttu máli

Ég hef starfað í upplýsingatækni síðan 2013, fyrst í notendaþjónustu og kerfisrekstri og síðar sem tæknistjóri með ábyrgð á hýsingarumhverfi í tveimur gagnaverum.

Í dag sé ég um stærri innleiðingar á Nutanix og Cohesity hjá Impact Data Solutions og er innlendur tæknilegur tengiliður fyrirtækja sem nota þessar lausnir. Ég hef séð um nær öll Cohesity umhverfi sem eru í notkun á Íslandi.

Ég tek verkefni frá upphafi til enda, frá netkerfi og hýsingu yfir í notendaþjónustu, og legg áherslu á að vera traustur tengiliður sem heldur hlutunum gangandi.

Hæfni

Hýsing og afritun
  • Nutanix (AOS, AHV)
  • Cohesity
  • Rekstur gagnavera
  • Veeam
  • Proxmox
  • VMWare
Netkerfi
  • Fortinet
  • Hönnun og rekstur víð- og staðarneta
  • Cisco
Upplýsingatækni
  • Microsoft 365
  • Azure
  • DNS og lénamál
  • Linux
Rekstur og þjónusta
  • Kerfisrekstur
  • Notendaþjónusta
  • MSP ráðgjöf og innleiðingar
  • Skjölun og verklag

Starfsreynsla

  1. Impact Data Solutions

    2025 – núna

    Upplýsingatækni innviða sérfræðingur

    • Stærri innleiðingar á Nutanix og Cohesity.
    • Innlendur tæknilegur tengiliður fyrirtækja sem nota þessar lausnir.
    Nánar

    Ég færði mig yfir til IDS sumarið 2025 þar sem ég hélt áfram að sjá um stærri uppsetningar á Nutanix og Cohesity ásamt því að halda áfram að vera innlendur tæknilegur tengiliður fyrir þau fyrirtæki sem nýta þessar lausnir.

  2. Endor

    2016 – 2025

    Kerfisstjóri, tæknistjóri frá 2021

    • Tæknistjóri frá október 2021 með ábyrgð á hýsingarumhverfi (compute, afritun og net) í tveimur gagnaverum.
    • Sá um nær öll Cohesity umhverfi á Íslandi og stærri Nutanix innleiðingar.
    • Sá nær einn um ráðgjöf og innleiðingu fyrir nýja viðskiptavini, t.d. Lagerinn (JYSK, ILVA og JYSK í Færeyjum) og Hrafnistu.
    • Hönnun, uppsetning og rekstur víð- og staðarneta, meðal annars útskipti á Fortinet búnaði fyrir stærri viðskiptavini.
    • Lykilhlutverk þegar Endor tók við kerfisrekstri Sýnar hf. um áramótin 2023: skjölun, verklag, nýtt þjónustukerfi og símkerfi.
    Nánar

    Í október 2016 tók Endor við rekstrinum á TT og hefur starfið tekið miklum breytingum síðan þá. Til að byrja með hélt ég mestmegnis áfram í Ölgerðinni þar til sá rekstur fór annað, en fór einnig að sinna öðrum viðskiptavinum — aðallega Íslandshótel ásamt of mörgum smærri fyrirtækjum til að telja. Verkefnin voru samt af svipuðum toga: kerfisrekstur og notandaþjónusta, og ég var alltaf sá sem sá um Office 365, Azure, DNS og lénamál.

    Í Covid varð ákveðin hugarfarsbreyting innan Endor sem varð til þess að fókusinn var mikið meiri á innlenda MSP markaðinn. Með því voru nýir viðskiptavinir sóttir inn, t.d. Lagerinn (JYSK, ILVA og JYSK í Færeyjum) og Hrafnista, og sá ég nær einn um ráðgjöf og innleiðingu á þessum viðskiptavinum. Á þeim tíma einbeitti ég mér mikið að rekstri netkerfa og sá um samskipti, útfærslu og uppsetningu á bæði víð- og staðarnetum.

    Samhliða daglegum verkefnum sá ég um stærri uppsetningar á Nutanix og nær öll Cohesity umhverfum sem notuð eru á Íslandi. Í október 2021 fékk ég titilinn Tæknistjóri og varð þar með ábyrgur fyrir hýsingarumhverfi okkar (compute, backup og network) í tveim gagnaverum. Um áramótin 2023 tók Endor við kerfisrekstri hjá Sýn hf. og spilaði ég lykilhlutverk í þeirri breytingu — skjölun, verklag, nýtt þjónustukerfi og símkerfi.

  3. Tölvu- og tækniþjónustan (TT)

    2013 – 2016

    Kerfisstjóri og notendaþjónusta

    Verktaka fyrirtæki sem sá meðal annars um alla UT þjónustu við Ölgerðina, Hús Atvinnulífsins o.fl. smærri fyrirtæki. Ég starfaði ýmist á helpdesk ásamt því að sjá um kerfisreksturinn.

Vottanir

Sagan

Ég er Hafnfirðingur í húð og hár, bý í Hafnarfirði og hef gert mest allt mitt líf, þó með stoppi á Dalvík 2000 - 2006, með fjölskyldunni minni, á þrjá stráka sem halda mér á tánum jafn mikið og vinnan gerir.

Áhuginn á tölvum og tækni byrjaði snemma og hefur fylgt mér alla tíð síðan. Frá 2013 hef ég starfað í upplýsingatækni, fyrst í almennri kerfis- og notandaþjónustu og síðan smám saman færst yfir í sérhæfðari verkefni, netkerfi, hýsingarumhverfi og stærri innleiðingar á lausnum eins og Nutanix og Cohesity. Það sem heldur mér við efnið er fjölbreytileikinn; engir tveir dagar eru eins, og ég kann vel við að leysa flókin vandamál og einfalda þau fyrir aðra.

Sem alhliða kerfisstjóri hef ég byggt upp breiða þekkingu sem nær yfir flesta þætti upplýsingatækniinnviða, þar á meðal netkerfi. Ég hef víðtæka reynslu af hönnun, innleiðingu og rekstri á bæði víð- og staðarnetum, og hef meðal annars séð um umfangsmikil útskipti og uppsetningar á Fortinet búnaði fyrir stærri viðskiptavini. Þessi breidd þýðir að ég get tekið heildstætt á verkefnum, frá netkerfi og hýsingu yfir í notandaþjónustu, án þess að þurfa að vísa málum áfram til annarra sérfræðinga. Að því sögðu þekki ég mín takmörk og óttast ekki að leita til annarra sé þess þörf.

Ég legg mig fram um að vera traustur tengiliður fyrir þá sem ég vinn með, hvort sem það er viðskiptavinur sem þarf skýr svör eða samstarfsfólk sem þarf einhvern til að taka af skarið. Þjónustulund og að halda hlutum gangandi snurðulaust skiptir mig meira máli en að eiga síðasta orðið um tæknilegar útfærslur.

Utan vinnu er ég mikið fyrir tölvuleiki, skotveiði, hreyfingu og að fikta í hinu og þessu, sem á sennilega stóran þátt í því af hverju tæknin heillaði mig til að byrja með.